Aðferð Fara í efni

Karfa

Karfan þín er tóm

Byggð á Barre. Styrkt með Pilates. Mýkt með Release.

Okkar nálgun að hreyfingu

AÐFERÐAFRÆÐIN

Ein aðferð. Sex leiðir til að hreyfa sig.

Allir tímar hjá NúnaCo. byggja á sömu grunnreglum. Hvort sem þú velur Barre, Pilates eða Release finnurðu sömu skýru uppbygginguna, markvissa framvindu og persónulegu leiðsögnina.

Í stað þess að byrja upp á nýtt í hverjum tíma byggir þú smám saman upp hreyfingu sem þróast með þér yfir tíma.

AÐFERÐIN

Það sem sameinar alla tíma.

Einn grunnur.

Sömu grunnreglur liggja að baki öllum tímum. Þannig verður hreyfingin markvissari, líkamsvitundin meiri og sjálfstraustið eykst með tímanum.

Byggt á barre

Barre er grunnurinn að aðferðinni. Þar mætast styrkur, líkamsstaða og nákvæmni og þaðan byggist allt annað upp.

Styrkt með Pilates

Pilates styrkir djúpvöðvana, stjórn og líkamsvitund svo hver hreyfing verði markvissari og tengdari.

Mýkt með Release

Bataferlið er hluti af aðferðinni. Release hjálpar líkamanum að losa um spennu, styður við endurheimt og skapar betra jafnvægi milli álags og hvíldar.

Markviss kennsla

Skýr uppbygging og nákvæm kennsla eru grunnurinn að öllum tímum. Þess vegna finnur þú sömu gæði, sömu nákvæmni og sömu umhyggju, sama hvaða tíma þú sækir.

Framfarir, ekki keyrsla

Við leitumst ekki við að finna upp eitthvað nýtt í hverjum tíma. Grunnurinn er alltaf sá sami, en engir tveir tímar eru eins.

barre

Þar sem styrkur mætir nákvæmni.

Barre er grunnurinn að aðferðafræði NúnaCo. Í tímunum byggjum við upp styrk, stöðugleika og líkamsvitund með markvissri uppbyggingu, nákvæmri kennslu og litlum, nákvæmum hreyfingum. Hver tími byggir á þeim fyrri og smám saman verður líkaminn sterkari, öruggari og meðvitaðri um hvernig hann hreyfir sig.

Þó margir þekki Barre fyrir brunann í vöðvunum er það aðeins hluti af upplifuninni. Markmiðið er að bæta líkamsstöðu, styrk og hreyfigetu sem nýtist þér bæði í stúdíóinu og í daglegu lífi. Þú ferð ekki bara út úr tímanum þreytt. Þú ferð út sterkari, öruggari og í betri tengingu við eigin líkama.

Pílates

Tenging sem kemur innan frá.

Pilates byggir upp djúpvöðva, stöðugleika og stjórn sem styðja við alla aðra hreyfingu. Með nákvæmum æfingum styrkir þú grunninn sem líkaminn byggir á og lærir að hreyfa þig af meiri nákvæmni og öryggi.

Innan aðferðafræði NúnaCo. stendur Pilates ekki eitt og sér. Það dýpkar það sem þú hefur þegar byggt upp í Barre og styrkir grunninn sem gerir allar hreyfingar skilvirkari, stöðugri og sterkari.

RELEASE

Þar sem jafnvægið fær pláss.

Release er órjúfanlegur hluti af aðferðafræði NúnaCo. Við trúum því að líkaminn þurfi bæði áskorun og endurheimt til að byggja upp styrk til lengri tíma.

Roll Release hjálpar til við að losa um spennu og bæta hreyfigetu. Deep Release skapar rými fyrir öndun, slökun og endurheimt taugakerfisins. Saman styðja tímarnir við allt það sem þú byggir upp í Barre og Pilates.

Endurheimt er ekki eitthvað sem gerist eftir æfingu. Hún er hluti af því hvernig við byggjum upp líkamann.

FINNDU ÞINN TÍMA

Ein aðferð. Sex leiðir til að hreyfa sig.

Hvort sem þú ert að leita að styrk, nákvæmni, meiri hreyfigetu eða rólegri endurheimt finnurðu tíma sem hentar þér. Allir tímar byggja á sömu aðferðafræði. Þú velur einfaldlega hvar þú byrjar.

NúnaCo. Barre

Heildrænn Barre tími sem byggir upp styrk, líkamsvitund og þol.

Barre Express

Sama aðferð. Styttri tími.

Mat Pilates

Nákvæm hreyfing sem byggir upp djúpstyrk, stjórn og stöðugleika.

Pilates Express

Styttri Pilates tími þegar dagurinn er þéttur.

Roll Release

Losar um spennu, eykur hreyfigetu og styður við bata.

Deep Release

Mjúk hreyfing, öndun og djúp slökun fyrir líkama og taugakerfi.