
Byrja hér
Fyrsta skrefið er einfaldara en þú heldur.
Það skiptir minna máli hvaða tíma þú byrjar á en að gefa þér tíma til að finna þinn takt. NúnaCo. Intro gefur þér svigrúm til að prófa, upplifa og kynnast því sem við höfum upp á að bjóða.
Með NúnaCo. Intro færðu ótakmarkaðan aðgang að öllum tímum fyrsta mánuðinn. Þú getur prófað Barre, Pilates og Release, kynnst kennurunum og fundið þá hreyfingu sem hentar þér best.

stúdíóið
Rólegt rými þar sem hvert smáatriði skiptir máli.
Við trúum því að umhverfið skipti máli. Þess vegna var stúdíóið hannað af alúð, þar sem hvert smáatriði styður við góða kennslu og betri upplifun.
Tvær einkasturtur, hár- og líkamsvörur þróaðar af URÐ fyrir NúnaCo. og allt sem þú gætir þurft fyrir eða eftir tíma. Smáatriði sem gera það einfalt að gera hreyfingu að hluta af deginum. Komdu eins og þú ert.

AÐFERÐIN
Sami grunnurinn. Ólíkar leiðir til að hreyfa sig.
Allir tímar hjá NúnaCo. byggja á sama grunninum. Hvort sem þú velur Barre, Pilates eða Release færðu sömu vönduðu kennsluna, skýra uppbyggingu og persónulega nálgun.
Tímarnir eru ólíkir í formi en hver og einn hefur sinn tilgang. Hvernig sem þú velur að hreyfa þig, er markmiðið alltaf það sama: að byggja upp styrk, líkamsvitund og sjálfstraust í hreyfingu.
NúnaCo. Barre
Grunntíminn sem byrjaði allt.
Barre Express
Sami grunnur. Styttri tími.
Mat Pilates
Styrkur. Stjórn. Líkamsvitund.
Pilates Express
Þegar tíminn er naumur.
Roll Release
Losar spennu. Eykur hreyfigetu.
Deep Release
Kyrrð. Slökun. Endurheimt.
Kennararnir
Ein aðferð. Mismunandi kennarar. Ein upplifun.
Allir kennarar hjá NúnaCo. eru þjálfaðir í sömu aðferðafræði og kenna af sömu nákvæmni, umhyggju og fagmennsku. Hver kennari kemur þó með sinn eigin persónuleika og reynslu inn í tímann. Því geturðu valið þann tíma sem hentar þér best og treyst því að kennslan verði alltaf jafn vönduð.

Arna Ýr
NúnaCo. Barre/Mat Pilates

Allie
NúnaCo. Barre

Hugrún
NúnaCo. Barre

Thelma
NúnaCo. Barre

Barrekennaranám
Lærðu að kenna Barre.
Barre Movement er alþjóðlega viðurkennt kennaranám okkar, hannað fyrir þau sem vilja kenna og þau sem vilja dýpka skilning sinn á aðferðafræðinni.
Hvort sem markmið þitt er að verða kennari eða einfaldlega læra meira sameinar námið staðlotur, sjálfsnám og verklega þjálfun. Þannig byggir þú upp þekkingu, öryggi og færni til að leiðbeina öðrum af fagmennsku.

Retreat NúnaCo.
Hreyfing í einstöku umhverfi.
Öll retreatin okkar byggja á sömu hugmynd og þú finnur í stúdíóinu. Hreyfing, næring, hvíld og samvera mynda grunninn að upplifun sem gefur þér tíma til að hægja á.
Fallegt umhverfi er hluti af upplifuninni en aldrei tilgangurinn með ferðinni.

VERSLUNIN
Sömu tól og við kennum með.
Allt sem þú finnur í versluninni okkar hefur unnið sér inn sinn sess. Þetta eru sömu vörur og við notum í tímum, mælum með við meðlimi okkar og notum sjálf.
Valdar og hannaðar af alúð til að styðja við hreyfingu þína, bæði í stúdíóinu og heima.
Valdar vörur
Samfélagið
Stúdíó sem verður hluti af þér
Með árstíðabundnum áskorunum, áföngum í hreyfingu, viðburðum fyrir meðlimi og litlum hefðum styður NúnaCo. við samkvæmni, tengsl og þá tilfinningu að eiga sinn stað. Það sem byrjar sem einn tími verður oft hluti af vikunni, kunnugleg andlit og samfélag sem vex með tímanum.
Áfangar í hreyfingu
Við fögnum áföngunum sem verða til þegar fólk mætir aftur og aftur.
Árstíðabundnar áskoranir
Litlar áskoranir sem hjálpa okkur að halda takti og hvetja hvert annað áfram.
Viðburðir fyrir meðlimi
Kvöld, vinnustofur, samvera og sérstakir viðburðir fyrir NúnaCo. samfélagið.
Litlar hefðir
Frá gjöf til nýrra meðlima, árlegra hefða og smáatriða sem gleðja inn á milli.






Vertu hluti af NúnaCo.
Fáðu af og til fréttir frá stúdíóinu, fyrstu fréttir af retreatum, kennaranámi og nýjum vörum, ásamt hugleiðingum um hreyfingu og vellíðan.




