retreat
Meira en vika í burtu.
Við trúum því að stundum þurfi aðeins meiri fjarlægð frá hversdagsleikanum til að sjá hlutina skýrar. Retreatin okkar skapa rými fyrir hreyfingu, hvíld og tengingu. Litlir hópar, fallegt umhverfi og dagar sem eru hugsaðir af natni hjálpa þér að snúa heim með meira en minningar.









Afhverju retreat
Vikan sem situr eftir.
Það gerist eitthvað þegar dagskráin hægir á sér. Þú finnur aftur taktinn í líkamanum. Máltíðir verða að samveru. Hreyfingin verður eitthvað sem þú hlakkar til, í stað þess að reyna að koma henni fyrir á milli verkefna.
Öll retreatin okkar eru byggð í kringum þessa hugsun. Fallegt umhverfi, markviss hreyfing, nærandi matur og nægt rými til að vera. Það er ekkert kapp. Engin þétt dagskrá. Markmiðið er ekki að flýja lífið heldur að snúa heim með meiri ró, meiri styrk og sterkari tengingu við sjálfið.
Svona líta dagarnir okkar út
Morguninn
Ferskur safi, smoothie, kaffi eða te áður en dagurinn byrjar með hreyfingu.
Hreyfing
Barre eða Mat Pilates, fylgt eftir með vinnustofum, fyrirlestrum eða annarri hreyfingu.
Bröns
Langur og nærandi bröns eldaður af einkakokkinum okkar.
Síðdegi
Tími til að synda, skoða nágrennið, fara í nudd, lesa eða einfaldlega hvíla sig.
Kvöld
Bandvefslosun, teygjur og slökun, áður en við borðum kvöldverð saman.
Næstu retreat

Mallorca 2026
Rólegt fjallaretreat hjá Finca Osa Major
29. ágúst til 5. september 2026
Einstaklingsherbergi · 1 laust
Tvíbýli · 2 laus pláss

Portúgal 2027
Hreyfing og bæjarlíf hjá Casa Fuzetta
1. til 8. september 2027
Bókanir opnar
Einstaklingsherbergi og tvíbýli í boði.

Marokkó 2027
Upplýsingar koma fljótt
Vorið 2027
Skráðu þig á biðlista
Einstaklingsherbergi og tvíbýli í boði.
HVAÐ GERIR FERÐINA EINSTAKA?
Hún er hönnuð öðruvísi.
Einkahús fyrir okkur
Hvert retreat fer fram í einkahúsi sem er eingöngu fyrir okkar hóp. Það skapar rólegt og persónulegt umhverfi þar sem auðvelt er að slaka á vikuna saman.
Dagleg hreyfing
Hver dagur byggir á NúnaCo. Barre, ítarlegum vinnustofum, losun á bandvef, djúpri hvíld og hreyfingu sem hjálpar þér að tengjast líkamanum á ný.
Einkakokkur
Einkakokkur sér um allar máltíðir allan dvalartímann. Maturinn er einfaldur, nærandi og ómissandi hluti af upplifuninni.
Rúmgóðir dagar
Dagarnir eru skipulagðir af natni en aldrei yfirfullir. Það er alltaf tími til að hvíla sig, skoða umhverfið eða einfaldlega vera. Við skiljum líka alltaf eftir rými fyrir hið óvænta.

SAMFÉLAG
Litlir hópar. Dýpri tengsl.
Staðurinn skiptir máli. Hreyfingin skiptir máli. En það sem flestir muna eftir er hvernig þeim leið. Samtölin yfir matarborðinu. Óvæntu vináttuböndin. Tilfinningin fyrir því að tilheyra sem vex með vikunni.
Þess vegna höldum við retreatunum okkar litlum. Þannig skapast rými fyrir raunveruleg tengsl, persónulegri kennslu og hóp þar sem allir finna sinn stað.

MALLORCA 2026
Kyrrð. Ró. Endurnæring.
Í kyrrlátum hlíðum Mallorca hægir lífið á sér. Með daglegri hreyfingu, nærandi máltíðum og löngum, rólegum dögum gefst tækifæri til að hvíla sig, endurhlaða og tengjast sjálfri sér á ný. Þetta er vika þar sem ekkert þarf að gerast og það er einmitt það sem gerir hana svo sérstaka.

Portugal 2027
Hreyfing. Samvera. Frelsi.
Í hjarta gamla bæjarins í Olhão sameinar þetta retreat markvissa hreyfingu og frelsið til að njóta. Á milli kennslustunda og sameiginlegra máltíða gefst tími til að rölta um bæinn, setjast á kaffihús, sigla út í eyjarnar eða einfaldlega njóta rólegs takts suður Portúgals.
Þetta er vika full af hreyfingu, sól, samveru og notalegum síðdegisstundum sem skilur eftir sig bæði orku og innblástur.
Hvert retreat hefur sinn eigin takt, sinn eigin stað og sína eigin sögu. En öll eiga þau eitt sameiginlegt. Markvissa hreyfingu, fallegt umhverfi, hlýlegt samfélag og tíma til að tengjast sjálfum sér á ný. Það er það sem situr eftir löngu eftir að vikunni lýkur.
Fyrri retreat
Staðirnir sem hafa markað okkur.
Ágúst 2025
Finca Osa Major, Mallorca
9 konur · þar hófst sagan
Apríl 2026
Casa Fuzetta, Olhão Portúgal
16 konur · Uppseld

