Skilmálar Fara í efni

Karfa

Karfan þín er tóm

Síðast uppfært: júlí 2026

Skilmálar

Þessir skilmálar útskýra hvernig áskriftir, bókanir og tímainneignir hjá NúnaCo. virka. Markmið okkar er að hafa hlutina eins einfalda, skýra og sanngjarna og mögulegt er.

Ef eitthvað er óljóst eða þú hefur spurningar er þér alltaf velkomið að hafa samband.

Áskriftarárið

Áskriftarárið 2026–2027 stendur frá 5. ágúst 2026 til 25. júní 2027.

Áskriftir eru skuldfærðar mánaðarlega og endurnýjast sjálfkrafa þann 2. hvers mánaðar. Vegna jólaleyfis og sumarhlés eru desember 2026 og júní 2027 rukkaðir hlutfallslega.

Áskrift gildir út allt áskriftarárið og er bindandi út tímabilið, nema annað sé sérstaklega samþykkt af NúnaCo.

Með kaupum á áskrift samþykkir þú þessa skilmála.

Áskriftir

NúnaCo. býður upp á þrjár áskriftarleiðir sem henta ólíkum þörfum og lífsstíl.

  • NúnaCo.30 – Ótakmarkaður fjöldi tíma í hverjum mánuði.
  • NúnaCo.12 – 12 tímar í hverjum mánuði.
  • NúnaCo.8 – 8 tímar í hverjum mánuði.

Nánari upplýsingar um fríðindi hverrar áskriftar má finna á verðskrá okkar. Fríðindi geta tekið breytingum milli áskriftarára eftir því sem stúdíóið þróast.

Greiðslur og breytingar á áskrift

Greiðslur fara sjálfkrafa af greiðslukorti sem skráð er í Momence. Gakktu úr skugga um að kortaupplýsingar séu réttar fyrir hverja skuldfærslu.

Takist ekki að skuldfæra áskriftina áskilur NúnaCo. sér rétt til að takmarka bókunarrétt þar til greiðsla hefur borist.

Hægt er að hækka eða lækka áskrift allt að tvisvar sinnum á hverju áskriftarári, að því gefnu að pláss sé í boði.

Athugið jafnframt:

  • Ekki er hægt að frysta áskrift.
  • Áskrift er bindandi út áskriftarárið nema annað sé sérstaklega samþykkt af NúnaCo.
  • Breytingar á áskrift eru háðar framboði.

Bókanir, tímainneignir og afbókanir

Áskriftir byggja á fjögurra vikna greiðslutímabilum og eru alltaf 2. hvers mánaðar. Við upphaf hvers tímabils bætast nýjar tímainneignir inn á aðganginn þinn.

Ónotaðar tímainneignir flytjast sjálfkrafa yfir á næsta greiðslutímabil svo lengi sem áskriftin er virk innan sama áskriftarárs. Allar inneignir renna út í lok tímabilsins og flytjast ekki yfir á næsta áskriftarár.

Hægt er að bóka tíma með allt að tveggja vikna fyrirvara í Momence. Ef tími er fullbókaður geturðu skráð þig á biðlista og færð sjálfkrafa pláss ef það losnar.

Ef þú kemst ekki í bókaðan tíma biðjum við þig um að afbóka hann svo annar meðlimur geti nýtt plássið.

Bókunarskilmálar okkar:

  • Áskriftir miðast við fjögurra vikna greiðslutímabil.
  • Ónotaðar tímainneignir flytjast innan sama áskriftarárs.
  • Allar inneignir falla niður í lok áskriftarárs.
  • Hægt er að bóka tíma með allt að tveggja vikna fyrirvara.
  • Afbóka þarf tíma að minnsta kosti 8 klukkustundum áður en hann hefst.
  • Afbókun eftir þann tíma kostar 500 kr.
  • Mæti þú ekki í bókaðan tíma án afbókunar telst það no-show og gjaldfærast 1.500 kr.
  • Gjöld eru skuldfærð sjálfkrafa af greiðslukorti sem skráð er í Momence.

10 tíma kort

10 tíma kortið hentar þeim sem vilja meiri sveigjanleika án mánaðarlegrar áskriftar.

  • Kortið er einstaklingstengt og ekki framseljanlegt.
  • Keyptir tímar renna aldrei út.
  • Momence sýnir fimm ára gildistíma vegna tæknilegra takmarkana kerfisins.
  • Ef kortið rennur út áður en allir tímar hafa verið nýttir endurnýjum við það fyrir þig. Tímarnir glatast aldrei.
  • 10 tíma kort eru ekki endurgreidd.

Veikindi og heilsustyrkir

Ef þú getur ekki haldið áfram í áskrift vegna veikinda eða meiðsla skaltu hafa samband við okkur á helga@nunacollective.com. Við metum hverja beiðni fyrir sig og reynum ávallt að finna sanngjarna lausn.

NúnaCo. er viðurkenndur þjónustuaðili hjá VIRK og mörgum stéttarfélögum og vinnuveitendum sem bjóða upp á heilsustyrki. Við útvegum kvittanir og önnur gögn sé þess óskað.

Annað

Við leggjum okkur fram um að bjóða upp á stöðuga og góða upplifun í stúdíóinu. Þó geta stundatöflur, kennarar og þjónusta tekið breytingum yfir árið.

Af og til eru teknar ljósmyndir eða stutt myndbönd í stúdíóinu til kynningar á starfseminni. Við virðum ávallt einkalíf meðlima okkar. Ef þú vilt ekki birtast á myndum eða myndskeiðum skaltu láta okkur vita og við tökum fullt tillit til þess.

NúnaCo. áskilur sér rétt til að uppfæra þessa skilmála þegar þörf krefur. Ávallt gildir nýjasta útgáfan sem birt er á heimasíðu okkar.