
Sagan okkar
Af hverju NúnaCo.
Hjá NúnaCo. trúum við því að hreyfing eigi að gera daglegt líf auðveldara. Hún á að hjálpa þér að standa beinni, hreyfa þig af meira öryggi og byggja upp þann styrk og þá hreyfigetu sem gerir þér kleift að gera það sem þú elskar árum saman.
Þess vegna snýst kennslan okkar ekki um að keyra þig út. Við kennum markvissa hreyfingu sem hjálpar fólki að skilja líkamann sinn, byggja upp varanlegan styrk og fara út úr stúdíóinu orkumeira en þegar það kom inn.
Markmið okkar er að skapa stað þar sem fólk getur byggt upp samband við hreyfingu sem endist langt út fyrir veggi stúdíósins.

NÁLGUNIN OKKAR
Kennsla af alúð.
Hver kennari kemur með sinn eigin stíl, en öll kennsla hjá NúnaCo. byggir á sömu grunngildum. Úthugsuð hreyfing, skýr leiðsögn og einlæg umhyggja fyrir fólkinu í salnum skapa samræmda upplifun, óháð því hver kennir tímann.
Allt sem við gerum er hannað til að hjálpa þér að byggja upp samband við hreyfingu sem styður þig, ekki aðeins í stúdíóinu heldur líka í daglegu lífi. Í því hvernig þú stendur, hreyfir þig og líður.
Við trúum því að góð kennsla snúist ekki um að standa fremst og sýna. Hún snýst um að sjá fólkið í salnum. Þess vegna eru kennararnir okkar á hreyfingu um salinn, leiðbeina, leiðrétta með snertingu þegar það á við og byggja tímana upp af natni svo þú getir hreyft þig af meira öryggi og sjálfstrausti.

SAGA HELGU
Hvernig NúnaCo. varð til.
NúnaCo. varð ekki til á einni nóttu. Það er afrakstur meira en fimmtán ára kennslu, náms og endalausrar forvitni um hvernig fólk hreyfir sig og hvernig góð kennsla getur breytt upplifuninni.
Það sem byrjaði sem ástríða fyrir barre þróaðist smám saman í kennsluaðferð sem byggir á ígrundaðri framvindu, skýrri leiðsögn og þeirri trú að hreyfing eigi ekki aðeins að styrkja líkamann heldur líka hjálpa fólki að skilja hann betur.
Áður en Helga flutti aftur til Íslands bjó hún í Kaliforníu þar sem hún kenndi barre, var meðeigandi að einu stúdíói og stýrði öðru. Þar upplifði hún hvernig sterk kennsla og náið samfélag geta skapað stað sem fólk vill snúa aftur til. Sú reynsla varð grunnurinn að NúnaCo.
Þegar hún flutti heim var markmiðið aldrei bara að opna stúdíó. Hún vildi skapa stað þar sem kennslan væri fagleg, samfélagið sterkt og fólki liði eins og það ætti heima. Þar sem jafnmikil áhersla væri lögð á hvernig við kennum og hvað við kennum.
Í dag leiðir Helga áfram þróun NúnaCo., sér um kennslufræði stúdíósins og kennir reglulega í hverri viku. Samhliða því leiðir hún Barre Movement, alþjóðlega viðurkennt kennaranám sem undirbýr framtíðarkennara víðs vegar um heiminn.
Teymið
Kennararnir okkar
Kynntu þér konurnar sem kenna hjá NúnaCo. Þótt hver kennari hafi sinn eigin persónuleika eiga þær það sameiginlegt að kenna af alúð, leiðbeina af skýrleika og mæta hverjum og einum af einlægri umhyggju. Saman skapa þær upplifun sem er persónuleg, samræmd og einstök fyrir NúnaCo.

Rakel Eva
NúnaCo. Barre / Barre Express

Camilla
NúnaCo. Roll + Deep Release

Samantha
NúnaCo. Barre / Barre Express

Allie
NúnaCo. Barre / Barre Express

Pálína
NúnaCo. Roll + Deep Release

Thelma
NúnaCo. Barre / Barre Express

Hugrún
NúnaCo. Barre / Barre Express

Örnu Ýr
NúnaCo. Barre / Mat Pilates

Guðbjörg
NúnaCo. Deep Release

Gullý
NúnaCo. Pilates Express / Pilates Barre


