Kennaranám Fara í efni

Karfa

Karfan þín er tóm

Lærðu að kenna með skýrri aðferð, markvissri handleiðslu og raunverulegri kennslureynslu. Hvort sem markmiðið er að leiða eigin tíma eða dýpka skilning þinn á hreyfingu, útskrifast þú með þekkingu, sjálfstraust og verkfæri sem nýtast til framtíðar.

Kenndu af öryggi.

Alþjóðlega viðurkennt kennaranám.

Barre Movement kennaranámið er alþjóðlega viðurkennt og samþykkt sem endurmenntun hjá leiðandi alþjóðlegum samtökum á sviði líkamsræktar og hreyfimenntunar.

ACE • 8.5 CECs | NASM/AFAA • 1.9 CEUs

125 klukkustunda kennaranám · Alþjóðleg viðurkenning · Endurmenntunareiningar

AFAA ACE NASM BFA
A yoga or dance class scene with several people in black and gray leggings standing in a studio, while a blonde instructor in a white top kneels beside one person, touching their foot and pointing toward the leg.

HUGMYNDAFRÆÐIN

Kennsla snýst um meira en æfingarnar.

Góð kennsla byrjar á skilningi, ekki utanbókarlærdómi. Bestu kennararnir sýna ekki bara æfingar. Þeir skilja hvernig hreyfing virkar, geta lagað hana að ólíkum líkömum og leiðbeint fólki af öryggi og skýrleika.

Barre Movement kennaranámið byggir á þeirri hugsun. Þú lærir að greina hreyfingu, leiðbeina af nákvæmni, aðlaga æfingar og kenna af tilgangi. Með fræðilegum grunni, verklegri reynslu og handleiðslu byggir þú upp þá færni sem þarf til að verða góður kennari, löngu eftir að náminu lýkur.

Því góð kennsla getur breytt því hvernig fólk upplifir hreyfingu.

Námið

Það sem þú lærir.

Hreyfingar og grunnatriði

Lærðu grunnreglurnar á bak við hverja æfingu svo kennslan byggi á skilningi, uppbyggingu og markvissri framvindu.

Hagnýt anatómía

Lærðu hvernig líkaminn hreyfist svo þú getir kennt af meira öryggi, aðlagað æfingar að ólíkum einstaklingum og tekið betri ákvarðanir í kennslu.

Leiðsögn og samskipti

Þróaðu skýra leiðsögn, áhrifaríkar sýnikennslur og samskiptahæfni sem hjálpar fólki að skilja, treysta sér og ná árangri.

Hands-on leiðréttingar

Lærðu hvernig markvissar leiðréttingar geta bætt hreyfigæði, aukið líkamsvitund og hjálpað fólki að hreyfa sig af meira öryggi.

Tímauppbygging og tónlist

Lærðu að byggja upp tíma sem flæða vel frá upphafi til enda með markvissri uppbyggingu, réttu tempói og tónlist sem styður kennsluna.

Verkleg kennsla

Byggðu upp sjálfstraust með athugunum, æfingakennslu og persónulegri endurgjöf svo fyrsti kennslutíminn líði ekki eins og sá fyrsti.

Barre Movement Teacher Training

Kennaranámið framundan.

Næsti hópur hefst í ágúst 2026.

Við höfum námið viljandi í litlum hópum, aðeins 10 þátttakendur í senn. Það gefur okkur tíma til að fylgja hverjum og einum eftir með persónulegri leiðsögn, verklegri kennslu og endurgjöf alla leið til lokaprófs.

Close-up of a person's legs wearing black pants and white textured non-slip socks or slip-on shoes, standing on a glossy floor with sunlight and shadows.

Reykjavík | 2026

6 kennsludagar á einum mánuði. 15.–16. ágúst • 23. ágúst • 12.–13. september • 20. september

Sækja um
Several people sitting cross-legged on black exercise mats in a studio, each with an open notebook in front of them. The foreground shows the back of a woman with her hair in a bun wearing a black top, and another person in a light blue top is visible in the upper right.

Lúxemborg | 2027

Þrjár helgar.
Dagsetningar verða auglýstar síðar.

SKRÁNING HEFST FLJÓTLEGA
Close-up of multiple people's hands gripping a wooden ballet barre in a studio, with shallow depth of field and warm, bright background lighting.

Reykjavík | 2027

Þrjár helgar
23.-24. janúar | 30.-31. janúar | 6.-7. febrúar

SKRÁNING HEFST FLJÓTLEGA

VIÐURKENNINGIN

Hannað fyrir raunverulega kennslu.

Barre Movement kennaranámið sameinar sjálfsnám, staðlotur og mikla verklega kennslu. Hvert skref byggir á því fyrra og gefur þér tíma til að tileinka þér efnið, æfa það sem þú lærir og fá markvissa endurgjöf áður en haldið er áfram.

Í gegnum námið fylgist þú með reyndum kennurum, tekur þátt í æfingakennslu, aðstoðar í tímum og byggir upp sjálfstraustið smám saman. Þegar lokaprófi lýkur hefurðu kennt, endurtekið, betrumbætt og þróað þá færni sem þarf til að leiða tíma af öryggi.

Kennaranám getur lagt grunninn. En kennari verður til með æfingu, endurgjöf og reynslu. Þess vegna er Barre Movement hannað til að undirbúa þig fyrir fyrstu árin í kennslu, ekki bara fyrstu kennslustundina.

Námið

Námið í hnotskurn

125

Klukkustundir sem sameina staðlotur, sjálfsnám og verklega kennslu, sem undirbýr þig til að kenna af öryggi.

4

Mánuðir af ótakmörkuðum aðgangi að öllum tímum hjá NúnaCo. svo þú upplifir aðferðina í eigin líkama á meðan þú lærir að kenna hana.

3

Kennsluhelgar sem byggja upp þekkingu þína og öryggi í kennslu skref fyrir skref, með tíma til að æfa þig á milli helga.

15

Æfingatímar sem þú kennir á meðan á náminu stendur, til að byggja upp öryggi og sjálfstraust áður en þú kennir sjálfstætt.

6

Innsend myndbönd af æfingakennslu með einstaklingsmiðaðri endurgjöf á leiðsögn, kennslustíl og framvindu þinni.

8

Rýnitímar með vinnubók sem þjálfa augað fyrir hreyfingu, kennslu og því sem skiptir máli í góðum tímum.

4

Klukkustundir í aðstoðarkennslu með reyndum leiðbeinanda áður en þú tekur við eigin tímum.

1

Lokapróf þar sem þú sýnir færni þína í kennslu, annað hvort í eigin persónu eða með innsendu myndbandi.

Námið | Ísland

Barre Movement kennaranámið er hannað til að undirbúa þig fyrir raunverulega kennslu með persónulegri leiðsögn, verklegri reynslu og markvissri endurgjöf.


Innifalið í námsgjaldi:

  • 125 klukkustunda alþjóðlega viðurkennt kennaranám
  • Fjórir mánuðir með ótakmörkuðum aðgangi að öllum tímum hjá NúnaCo.
  • Kennslugögn og vinnubækur
  • Einstaklingsmiðuð leiðsögn og endurgjöf
  • Verklegt lokapróf
  • Stuðningur og handleiðsla út allt námið

Greiða má námið í þremur jöfnum greiðslum.

Sækja um námið

Algengar spurningar